Kírópraktorstofa Íslands

Jón Arnar í Íslandi í dag
Frjálsíþróttamaðurinn Jón Arnar Magnússon telur að sjálfsofnæmi sem hann fékk í háskólanámi erlendis megi rekja til þess hversu snögglega hann hætti æfingum. Ofnæmið varð til þess að þessi fyrrum hár- og skeggprúði maður missti hvert einasta hár.

Eftir að hafa lært kírópraktík í Bretlandi í fimm ár er hann nú fluttur heim og starfar sem kírópraktor.

Ísland í dag hitti Jón Arnar en hægt að horfa á innslagið með því að smella á tengilinn hér að ofan.

Skoða myndband hér

Sjúkraþjálfarar frá Reykjalundi í heimsókn
Sjúkraþjálfarar frá Reykjalundi komu í heimsókn til að kynna sér starfsemi Kírópraktorstofu Íslands. Öllum fannst mikilvægt að starf kírópraktora og sjúkraþjálfara styðji hvort annað með sameiginlegt markmið í huga, að stuðla að bættri heilsu fólks.

Sjúkraþjálfararnir voru ánægðir með aðstöðuna og voru mjög hrifnir af stafrænni greiningartækni sem er notuð á stofunni.

70 sjúkraþjálfunarnemar í heimsókn
Sjúkraþjálfunarnemar frá Háskóla Íslands komu í heimsókn á Kírópraktorstofu Íslands í þeim tilgangi að kynna sér starfsemina.

Opnun Kírópraktorstofu Íslands
Kírópraktorstofa Íslands opnaði 1. nóvember 2010. Fjöldi vina og velunnara mættu á svæðið og kynntu sér starfsemi stofunnar sem státar af bestu stafrænni röntgentækni sem völ er á í dag.

Bakverkir golfarans
Bakverkir eru mjög algeng meiðsli hjá golfiðkendum. Margar ástæður eru fyrir þessum meiðslum, því er mikilvægt að finna orsökina hjá hverjum og einum og leiðrétta til að koma í veg fyrir frekari og jafnvel verri meiðsli. Slæm líkamsstaða, rangur sveifluferill, vöðvaójafnvægi, skertur hreyfanleiki í hrygg og vöðvum. Hvað er til ráða?

Hrygggreining. Ef hryggurinn hreyfist ekki eðlilega þá er erfitt fyrir okkur að framkvæma góða golfsveiflu.

Vöðvastyrking. Mikilvægt er að leggja áherslu á þá vöðvahópa sem koma að sveiflunni. Ekki gleyma að leggja áherslu á rassvöðva, kviðvöðva og mjóbak.

Hitið upp. Golfsveifla er mikið álag á liði og vöðva því hreyfingin er snögg og kraftmikil. Hitið alltaf upp fyrir golfleik á sama hátt, það eykur stöðugleika á fyrsta teig.

Teygjuæfingar. Að teygja í 5–10 mínútur á hverjum degi skilar miklum árangri til lengri tíma og minnkar líkurnar á meiðslum í framtíðinni. Nægur hreyfanleiki er undirstaða góðrar golfsveiflu.

Láttu meta hvaða æfingar og teygjur henta þér til að koma í veg fyrir meiðsli. Njóttu þess að spila golf án verkja.

Líkamsrækt til að viðhalda sveiflunni
Margir hætta alveg að sveifla golfkylfu yfir vetrartímann sem er ekki rétt að gera. Það tekur líkamann fyrsta mánuðinn á hverju sumri að venjast sveiflunni aftur og þann tíma megum við ekki missa hérna á Íslandi því golftímabilið er stutt.

Að stunda líkamsrækt yfir vetrartímann er það besta sem við getum gert til að viðhalda vöðvastyrk, þoli og liðleika. En hvernig er best að byrja?

Best er að tala við fagaðila sem er menntaður á þessu sviði svo hann geri sér grein fyrir hvaða vöðvar eru mikilvægastir fyrir golfsveifluna þína. Mikilvægt er að fá réttar æfingar sem henta þér og vinna að leiðréttingu frekar en að stuðla að frekari óstöðugleika. Gott er að setja sér markmið og setja upp æfingaáætlun yfir vetrartímann, blanda saman æfingum fyrir stutta spilið og pútta ásamt líkamsrækt.

Breytingar eru gerðar á veturna ekki yfir sumartímann þegar við viljum eyða tímanum á golfvellinum.

Hversu mikil áhrif hefur skert hreyfigeta í hálsi á golfsveifluna?
Hálsinn er gríðarlega vanmetið hryggsvæði þegar kemur að því að hafa nægilegan hreyfanleika fyrir golfsveifluna. Til að undirstrika mikilvægi þess að hafa nægan hreyfanleika í hálsinum, ímyndaðu þér hvernig væri að spila golf með hálsríg.   Algeng mistök iðkenda með skertan hreyfanleika í hálsi er til dæmis styttri sveifla, að missa stöðuna auðveldlega og óstöðugt höfuð yfir boltanum. Þess vegna er algengt að sjá hliðarhreyfingar og oft aðeins á efri hluta líkamans. Við eigum að geta snúið höfðinu í 90° til hægri og vinstri, það er að geta horft yfir skyrtusaumana á öxlum og jafnt báðum megin. Ef þetta er vont eða ómögulegt, þá ert þú með skerta hreyfigetu í hálsinum.

Aukinn sveifluhraði
Rannsóknir sýna að þú getur aukið sveifluhraðann með því að bæta styrktarþjálfun og liðleikaþjálfun við æfingakerfið þitt. Til að geta slegið boltann lengra verður þú að hafa stöðugleika og styrk í neðri hluta líkamans, jafnt sem efri hluta líkamans og í höndum. Styrkur er aðeins grunnurinn; styrkur gefur þér möguleika á að framkvæma snúninginn og dregur klárlega úr líkum á meiðslum, en án liðleika og jafnvægis munt þú ekki geta aukið sveifluhraðann. Ef þú bætir styrk og eykur vöðvamassa án liðleikaþjálfunar þá getur þú misst það sem kallað er rétt tímasetning og sveifluhraðinn verður hægari. Flestir hafa nægan styrk til að sveifla golfkylfu en oftar er liðleikaþjálfuninni ábótavant. Prófaðu að standa á öðrum fæti, hafðu hendur niður með síðum og horfðu beint fram. Þetta átt þú að geta gert vandræðalaust í 30 sekúndur. Ef ekki, gerðu þá þessa æfingu á hverjum degi og þannig öðlast þú það jafnvægi sem er svo mikilvægur hluti af golfsveiflunni.

Golf og hitaeiningar
Golfhringur tekur að meðaltali tæpa fjóra tíma og vegalengdin sem er gengin er að minnsta kosti 9.000 metrar. Iðkendur brenna á bilinu 2.000-2.500 hitaeiningum á einum golfhring og missa um það bil 1-1,5 kg á 18 holu hring.

Margir kannast við að seinustu 4–6 holurnar enda með hærra skori en við hefðum viljað, en af hverju? Ef mataræðið er ekki næringar- og orkuríkt eða ef hreinlega ekkert er borðað fyrir 18 holu golfhring þá verðum við fyrir svokölluðu blóðsykurfalli, einbeiting og kraftur minnkar snögglega og hæfni okkar til að spila gott golf dvínar. Besta leiðin til að koma í veg fyrir að lenda í þessum aðstæðum er að borða reglulega yfir daginn og góða máltíð 2–3 tímum fyrir golfiðkun. Nauðsynlegt er að hafa með sér ávöxt eða samloku til að borða með jöfnu millibili á meðan spilað er. Að borða sjaldnar gerir það að verkum að líkaminn hægir á brennslunni og í raun léttumst við hægar og missum hærra hlutfall af vöðvum en þegar mataræðið er í lagi.

Að lokum, munið að drekka vatn á meðan spilað er og sérstaklega þegar spilað er erlendis í miklum hita.

Hnéverkur
Alltof margir eru slæmir í hnjám og hafa jafnvel farið í aðgerð á hné eða hnjám til að laga vandamálið. Aðgerðin leysir vandann hjá sumum en aðrir verða aftur slæmir eða hreinlega lagast ekki við aðgerðina. Þá er nauðsynlegt að horfa á stóru myndina. Rangt álag til lengri tíma getur myndað hnémeiðsl eða valdið slysi. Mikilvægt er að komast að og leiðrétta orsökina fyrir verknum.

Hné er einn af þessum óheppnu liðum sem er háður eðlilegri hreyfingu frá mjöðmum og ökklum, ef hreyfing skerðist frá þessum fyrrnefndu liðum þá getur það breytt afstöðu hnéliðarins og myndað óeðlilegt slit. Ef vöðvar í kringum hné eru missterkir og eða liðbönd á utanverðu lærinu (IT-band) stíf getur það valdið því að hnéskelin hreyfist óeðlilega og myndað bólgur undir hnéskel sem getur verið sársaukafullt. Stuttur fótur getur valdið óeðlilegu álagi á mjaðmir og skert hreyfigetu mjaðmaliðarins í svokölluðum ytri snúning liðarins, við það styttast vöðvar í kringum mjaðmaliðinn og hvað gerist? Hætta á meiðslum í baki hnjám eykst og golfsveiflan getur breyst til hins verra.

Láttu ekki verki og óþægindi koma í bakið á þér. Hryggurinn þinn er grunnur að góðri heilsu. Finnum og leiðréttum orsökina, það er leiðin út úr meiðslum.