Þegar kírópraktorarnir okkar taka við skjólstæðingum í fyrsta tímann er markmiðið alltaf að leiðbeina fólki til betri heilsu með kírópraktískri meðferð. Algengt er að fólk leiti til okkar með vandamál sem, í okkar augum, er oft ósköp einfalt að leysa ef fólk hefði fengið meðferð og/eða ráðleggingar strax þegar þau komu upp. Með öðrum orðum, […]
Category Archives: Fróðleikur
Kírópraktík sem meðferðarúrræði reiðir sig að mestu leyti á hnykkingar. Hnykkingar geta verið mjög fjölbreyttar og tilgangur þeirra getur verið mjög misjafn eftir aðferðum innan greinarinnar. Það sem stjórnar því hvar hnykkingin er framkvæmd er fyrirbæri sem við kírópraktorar köllum liðfall (e. subluxation). Hugtakið liðfall er rauði þráðurinn í kírópraktískri hugmyndafræði. Aðalmarkmið kírópraktora er að […]
Eins og fram hefur komið hafa átt sér stað eigendaskipti á Kírópraktorstofu Íslands. Magni Bernhardson opnaði stofuna árið 2010 og hefur stýrt henni frá upphafi með frábærum árangri í góðu samstarfi við Sporthúsið og Sjúkraþjálfunina í Sporthúsinu. Til stofunnar hafa leitað ríflega 17.000 manns í gegnum árin. Nýjir eigendur eru Helga Björg Þórólfsdóttir og Matthías […]
Einstaklingar með höfuðverki ganga reglulega inn um okkar dyr. Höfuðverkir eru taldir vera eitt af grundvallarheilkennum sem kírópraktorar geta, oft og tíðum, hjálpað mikið með, samkvæmt vísindalegum rannsóknum (Bronfort et al., 2001). Þar sem höfuðverkir geta vissulega verið mjög alvarlegir verður að hafa varann á og vanda mjög til verka við greiningu þegar höfuðverkir eiga […]
Verkur í öxl Öxlin samanstendur af upphandleggsbeini, herðablaði og viðbeini. Upphandleggsbeinið situr svo í glenoid-skálinni á herðablaðinu og er haldið stöðugri þar með fjórum vöðvum sem kallast rotator cuff-ið. Í hinu vestræna samfélagi eru axlavandamál mjög algeng en oft má rekja stóran hluta þeirra til mikils álags á þessa fjóra vöðva, sinar og vöðvafestur þeirra. Þegar þessi vandamál banka upp á er gríðarlega mikilvægt […]
Mjóbaksverkir vegna langverandi setu Allur mannslíkaminn er „hannaður“ með það að leiðarljósi að hann sé meira og minna á hreyfingu. Það er því í rauninni mjög óeðlilegt fyrir hann að þurfa að sitja í lengri tíma, sama hvort það er í stól, á gólfi, í sófa eða bíl. Þegar við sitjum er líkaminn hreyfingarlítill og […]
Bakverkir – Hvað veldur? Flestir hafa heyrt orðin þursabit, tak í bakið og mjóbaksverkir. En hver er þýðingin og munurinn á milli þeirra? Allt geta þetta verið mismunandi heiti yfir sömu eða svipuð einkenni þar sem verkjum er lýst í eða í kringum mjóbakssvæðið. Einkennin geta verið staðbundin eða leitt niður í rasskinnar eða fram […]
Hestamennska fyrir líkama og sál „Allir hestamenn geta verið sammála um að reiðtúr á góðum hesti sé hressandi bæði fyrir líkama og sál. Þó hafa þeir líklega flestir heyrt frá fólki sem er síður fyrir hestamennsku að það sé lítið mál að ríða út; maður einfaldlega sitji og hesturinn sjái um alla vinnuna. Þetta er […]
Verkur í hálsi – Hvað veldur? Er hálsinn stífur? Er verkur í öðru eða báðum herðablöðum? Er verkurinn stöðugur, líka í hvíld og yfir nóttina? Hefurðu á tilfinningunni að þú þurfir að láta braka í bakinu? Fer verkurinn upp í höfuð eða niður í handlegg? Engin breyting á verkjum eða stífleika þrátt fyrir verkjalyf eða […]
Íþróttaiðkun barna og unglinga. Hlustum og fylgjumst með Jón Arnar Magnússon, kírópraktor hjá Kírópraktorstofu Íslands og ólympíufari í tugþraut. Fréttatíminn 17.júlí 2015 Ég hef undanfarið fylgst með umræðunni varðandi meiðsl og álag á börn og unglinga í íþróttum. Íþróttaiðkun hefur farið vaxandi og eru nú ansi margir einstaklingar farnir að æfa eins og afreksíþróttamenn. Ég hef […]